Netsvik
Netsvik eru vaxandi vandamál og betra að vera stöðugt á varðbergi gagnvart sliku. Verið varkár á netinu!
Það eru ýmsar leiðir til að komast yfir aðganga og lykilorð. Eitt dæmi er með tölvupóstum þar sem þú ert beðin(n) um að slá inn notandanafn og lykilorð fyrir vefsíðu sem lítur út eins og síða sem þú notar venjulega, til dæmis Google, Facebook eða heimabanka.
- Láttu þína notendaþjónustu eða Upplýsingatæknisvið (UTS) vita og segðu hvað hefur gerst.
- Hugleiddu hvernig þetta gæti hafa gerst. Hefur þú nýlega slegið inn notandanafn og lykilorð á grunsamlegri vefsíðu?
- Reyndu að átta þig á hvaða aðgangur hefur verið tekinn yfir og hvaða heimildir sá aðgangur hafði í mismunandi kerfum.
- Hvaða upplýsingar gætu hafa komist í rangar hendur? Hafðu samband við þá sem málið varðar.
- Breyttu öllum lykilorðum þínum og notaðu aðra tölvu. Breyttu lykilorði fyrir nemenda- eða starfsmannaaðganginn þinn og önnur tölvupóstföng.
- Lokaðu öllum greiðslukortum strax ef þú hefur vistað kortaupplýsingar sem gætu verið misnotaðar.
Ef einhver nær stjórn á tölvunni þinni getur viðkomandi misnotað, stolið og eyðilagt allar þær upplýsingar sem þú hefur aðgang að í þínum stafræna heimi. Það getur líka orðið leið inn í þau stafrænu kerfi og úrræði þar sem þú vinnur eða stundar nám.
- Tölvan virðist hægari en venjulega eða tekur lengri tíma í ræsingu.
- Þú getur ekki skráð þig inn því einhver hefur breytt lykilorðinu á einni eða fleiri netþjónustum sem þú notar.
- Óvenjulegir sprettigluggar birtast, til dæmis við ræsingu.
- Ókunn tákn birtast á tækjastikunni.
- Vírusvarnarforritið þitt tilkynnir um skaðlegan hugbúnað.
- Ljósið á vefmyndavél fartölvunnar þinnar logar þótt þú sért ekki að nota hana.
- Óþekktar skrár birtast á harða disknum þínum.
- Þú ert útilokuð/útilokaður frá netþjónustum sem þú notar venjulega vegna þess að tölvan þín hefur verið sett á bannlista.
- Aftengdu tölvuna frá internetinu til að koma í veg fyrir frekari gagnaleka og misnotkun á tölvunni.
- Hafðu samband við notendaþjónustu eða aðila með sérþekkingu í upplýsingatækni eins fljótt og auðið er.
Ef þetta gerist á einkatölvunni þinni, einnig:
- Metið hvaða upplýsingar kunna að hafa komist í rangar hendur og hafðu samband við þá sem málið varðar.
- Keyrðu fulla handvirka vírusleit á allri vélinni. Ef þú ert ekki viss um að vandamálið sé leyst ætti að setja tölvuna upp aftur.
- Notaðu aðra tölvu til að breyta lykilorði fyrir nemenda- eða starfsmannaaðganginn þinn og alla aðra aðganga sem kunna að hafa verið í hættu. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir þann aðgang sem tekur við tölvupósttilkynningum um lykilorðsbreytingar, og fyrir aðganga sem veita þér mikilvæg réttindi eða aðgang að úrræðum á vinnu- eða námsstað.
- Mundu að nota mismunandi lykilorð fyrir mismunandi aðganga.
Þú áttar þig á að tölvan hefur orðið fyrir gíslatökuhugbúnaði þegar þú færð skilaboð um að einhver hafi tekið skrárnar þínar í gíslingu og að þú þurfir að borga til að fá aðgang að þeim aftur. Þú gætir líka uppgötvað það með því að taka eftir því að skrárnar þínar hafa verið læstar og ekki er hægt að opna þær.
- Aftengdu tölvuna frá netinu til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu.
- Ekki greiða lausnargjaldið. Með því styður þú glæpastarfsemi og það er alls ekki víst að þú fáir aðgang að skránum þínum aftur.
- Hafðu samband við notendaþjónustu Upplýsingatæknisviðs.
- Ef setja þarf tölvuna upp aftur glatast skjölin þín. Endurheimtu því skrár úr öryggisafriti.
- Stundum er hægt að bjarga skrám af harða disknum, en það er yfirleitt nokkuð kostnaðarsamt.
Ef það vakna grunsemdir um að eitthvað misjafnt sé á seyði skal hafa samband við tölvuþjónustu UTS tafarlaust.