Öryggi og velferð
  • Íslenska
  • English

Viðbragðsáætlanir

Innbrot / þjófnaður

  • Innbrot, þjófnaður eða skemmdarverk á byggingum eða innanstokksmunum
    • Atvik sem eru kærð til lögreglu
  • Mat á aðstæðum
    • Stafar hætta af vettvangi?
    • Þarf að gera bráðabirgðalagfæringar á byggingu?
  • Fyrstu viðbrögð
    • Tilkynna til lögreglu
    • Tilkynna umsjónarmanni byggingar
    • Girða svæðið af þar til lögregla hefur lokið störfum á vettvangi.
  • Mismunandi stig viðbragða
    • Lögregla er alltaf kölluð til.
  • Skuggaboð eru ekki send
    • Aðeins ef sjúkra- eða slökkvilið er kallað út
  • Sá sem fyrstur verður var við innbrot/þjófnað
    • Lætur umsjónarmann hússins vita
    • Gætir þess að vettvangi sé ekki raskað
    • Ekki er ætlast til að fólk elti uppi eða handsami geranda
  • Umsjónarmaður byggingar
    • Kemur á staðinn og kannar aðstæður
    • Hringir í lögreglu ef það hefur ekki þegar verið gert
    • Gyrðir vettvanginn af og tryggir öryggi þar til lögregla kemur
    • Safnar vitnum
    • Gefur skýrslu til deildarstjóra fasteignaumsjónar
  • Deildarstjóri fasteignaumsjónar
    • Kemur á staðinn
    • Sér um samskipti við lögreglu
    • Safnar gögnum úr öryggismyndavélum og afhendir lögreglu
    • Hefur samband við deildarstjóra viðhalds fasteigna
    • Gefur sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs skýrslu
  • Deildarstjóri viðhalds fasteigna
    • Kannar vettvang
    • Kallar til iðnaðarmenn til bráðabirgðaviðgerða
    • Skipuleggur viðgerðir á húsnæði
  • Verkefnastjóri öryggismála
    • Safnar gögnum og stýrir endurmati
  • Samskipti innan stofnunar
    • Það er sjálfsagt að miðla upplýsingum til starfsmanna um atvik og viðbrögð, bæði til að upplýsa og draga úr líkum á sögusögnum
    • Meta þarf í hverju tilviki hvort senda eigi út tilkynningu
      • Mikilvægt er að gæta persónuverndar
        • Fréttir á Uglu.
        • Fréttir á ytri vef
        • Tölvupóstur
  • Samskipti við viðbragðsaðila
    • Stjórnendur á vetvangi
      • Deildarstjóri fasteignaumsjónar
  • Samskipti við fjölmiðla
    • Rektorskrifstofa

 

© 2026 Öryggi og velferð