Öryggi og velferð
  • Íslenska
  • English

Viðbragðsáætlanir

Vatn

Atburður

  • Vatn flæðir um byggingu eða byggingar.

Mat á aðstæðum

  • Regn eða leysingavatn.
  • Flóð frá bilaðri vatnsveitulögn.
  • Brostin eða biluð vatnslögn innandyra.
  • Heitt vatn.
  • Kalt vatn.

Fyrstu viðbrögð

  • Finna uppruna lekans.
  • Stöðva lekann, skrúfa fyrir vatnsrennsli ef mögulegt er.

Stig viðbragðs

  • Innanhússviðbrögð.
  • Utanaðkomandi aðstoð slökkviliðs.
  • Aukaaðstoð verktaka.
  • Fyrstur á staðinn
    • Kannar uppruna vatnsins
      • Innanfrá
      • Utanfrá
    • Hringir
      • Fasteignaumsjón
      • Öryggisfyrirtæki
      • 112 Slökkvilið
  • Umsjónarmaður
    • Kemur á staðinn – metur aðstæður
    • Hefur slökkvistörf ef hann metur aðstæður þannig
    • Hringir í 1-1-2 og biður um aðstoð slökkviliðs ef hann metur aðstæður þannig
    • Hringir í Deildarstjóra reksturs fasteigna og gefur skýrslu
    • Getur hringt í aðra umsjónarmenn til að fá aðstoð.
    • Innanhúss viðbragð er hafið
  • Deildarstjóri fasteignaumsjónar
    • Kemur á staðinn – tekur stjórnina
    • Getur kallað út mannskap til aðstoðar eins og hann telur þörf á
      • Aðstoðar slökkvilið eftir föngum
    • Hringir í rekstrarstjóra fasteigna – gefur skýrslu
    • Hringir í Deildarstjóra viðhalds fasteigna – gefur skýrslu
  • Deildarstjóri viðhalds fasteigna
    • Kemur á staðinn, tekur stjórn verkefna í samráði við deildarstjóra fasteignaumsjónar
      • Kallar út iðnaðarmenn eftir þörfum
  • Deildarstjóri reksturs fasteigna
    • Er ekki á staðnum
      • Er í sambandi við vetvang og safnar upplýsingum og deilir þeim út
      • Miðlar upplýsingum innan viðbragðs
      • Miðlar upplýsingum til deilda og stofnana HÍ sem málið varða
    • Er til taks til að hringja út:
      • Mannskap
      • Öryggisfyrirtæki
      • Ábyrgðarmenn sérrýma
    • Sendir upplýsingar á póstlista neyðarstjórnar jafnóðum og þær berast.
      • Viðbragðsáætlun er virk
  • Sviðsstjóri Framkvæmda og tæknisviðs
    • Tekur þátt í samráði við deildarstjóra reksturs fasteigna og deildarstjóra viðhalds fasteigna.
  • Ábyrgðarmenn rýma
    • Ef flæðir í sérrými eru ábyrgðarmenn kallaðir út til aðstoðar.
  • Samskipti innan stofnunar
    • Það er sjálfsagt að miðla upplýsingum til starfsmanna um atvik og viðbrögð, bæði til að upplýsa og draga úr líkum á sögusögnum.
    • Meta þarf í hverju tilviki hvort senda eigi út tilkynningu og athuga að gæta persónuverndar. 
      • Fréttir á Uglu.
      • Fréttir á ytri vef.
      • Tölvupóstur.
  • Samskipti við viðbragðsaðila
    • Stjórnendur á vetvangi
      • Deildarstjóri fasteignaumsjónar
  • Samskipti við fjölmiðla
    • Rektorskrifstofa

© 2026 Öryggi og velferð