Events
Við Háskóla Íslands er haldinn fjöldi funda og ráðstefna á hverju ári. Mikilvægt er að gæta að öryggi þátttakenda og gesta á slíkum viðburðum og hér eru nokkrir punktar sem viðburðahaldarar verða að gefa gaum.
Framkvæma áhættumat fyrir viðburðinn og innleiða öryggisráðstafanir eftir þörfum. Hér fylgja dæmi um mögulegar öryggisráðstafanir en listinn er ekki tæmandi.
- Staðsetning viðburðar
- Skipuleggja viðburðinn í húsnæði með tilliti til flóttaleiða fyrir þátttakendur og gesti. Æskilegt er að rýmið hafi fleiri en eina flóttaleið.
-
Velja rými sem er nægilega stórt fyrir áætlaðan gestafjölda. Mælt er með skráningu á viðburði.
-
-
Eftir atvikum getur verið æskilegt að skipuleggja viðburð í rými þar sem gestir hafa ekki greitt aðgengi að púltinu/þátttakendum, eða aðlaga rýmið til að takmarka þennan aðgang.
-
-
-
Skipuleggjandi skal kynna sér flóttaleiðir og staðsetningu neyðarbúnaðar, svo sem eldvarna- og skyndihjálparbúnaðar.
-
- Samskipti
- Skrá viðburð í viðeigandi viðburðadagatal HÍ og tryggja að tengiliður sé skráður fyrir viðburðinum.
-
Upplýsa umsjónarmann byggingar ef þarf að gera sérstakar ráðstafanir fyrir viðburð.
-
-
Upplýsa þátttakendur viðburðarins, eftir því sem við á, um möguleg mótmæli o.þ.h. svo þeir geti tekið upplýsta ákvörðun um áframhaldandi þátttöku og/eða gert eigin ráðstafanir.
-
-
-
Fara yfir öryggisatriði svo sem flóttaleiðir og staðsetningu neyðarbúnaðar með þátttakendum og öðrum sem koma að viðburðinum.
-
-
-
Upplýsa starfsfólk viðkomandi byggingar um viðburð og ráðstafanir eftir atvikum og ef hægt er.
-
-
-
Ef grunur er um að viðburður verði umdeildur skal upplýsa rektor@hi.is og oryggi@hi.is um viðburð og viðbúnað.
-
- Ef talin er þörf á viðbúnaði lögreglu
-
Upplýsa lögreglu um viðburðinn og óska eftir mati hennar á þörf fyrir viðveru eða önnur viðbrögð.
-
-
-
Ef lögregla hefur frumkvæði að því að bjóða fram aðstoð við að gæta öryggis á viðburðum skal ávallt þiggja það.
-
-
-
Upplýsa lögreglu sérstaklega ef hótanir hafa verið settar fram.
-
-
-
Meti lögregla viðveru sína mikilvæga er stjórn og framkvæmd öryggismála á hennar ábyrgð, með aðstoð skipuleggjenda eftir þörfum.
-
-
-
Tilnefna tengilið við lögreglu í síma 112.
-
-
Upplýsa skal þátttakendur og gesti um flóttaleiðir og neyðarbúnað í upphafi viðburðar.
-
Tryggja að flóttaleiðirnar séu aðgengilegar.
-
Tryggja að ekki sé farið yfir fjöldatakmörk rýmis.
-
Tilnefndur tengiliður skal vera tilbúinn að upplýsa lögreglu um staðsetningu og aðkomu, þar með talið að taka á móti þeim við inngang og vísa þeim veginn.
-
Viðbrögð við ógnandi hegðun og ofbeldi: Upplýsa skal lögreglu um ógnandi hegðun og líkamlegt ofbeldi. Skapist alvarlegt eða yfirvofandi hættuástand á viðburði skal hringja í neyðarlínuna í síma 112 án tafar.
Eftir viðburðinn er gagnlegt að gera endurmat. Hvað gekk vel og hvað mætti bæta. Mikilvægt er að skrifa þessar upplýsingar niður svo þær gagnist á næsta fundi.
Takmörk ábyrgðar starfsfólks
Háskóli Íslands er ekki með öryggisverði í starfi og starfsfólki HÍ er ekki ætlað að taka þátt í átökum við mótmælendur eða aðra aðila sem hætta stafar af. Við slíkar aðstæður skal ávallt hringja í neyðarlínuna í síma 112.